Aðgangur að upplýsingakerfum fyrir ólíka þætti starfseminnar er grundvöllur að góðum árangri og sjálfbærri samkeppnishæfni
Heildarlausn í upplýsingakerfum
Í samræmi við tilgang okkar erum við stöðugt að vinna að þróun á nýjungum sem nýtast í stjórnun fyrirtækja. Meðal þess sem hefur bætst í vöruvalið hjá okkur undanfarið eru:
- Ideas2benefit kerfi fyrir hugmyndastjórnun. Leiðir til að bæta árangur við að nýta hugmyndir er næsta skref í þróun stjórnunaraðferða, enda er það forsenda fyrir því að fyrirtæki standist aukna samkeppni til lengri tíma.
- Accounting2benefit bókhaldskerfi sem byggja á nýrri tækni fyrir tölvuský og tryggir að gögnin haldist og hægt sé að vinna áfram í kerfinu, jafnvel þó að tenging við gagnagrunninn rofni. Kerfin búa yfir ótrúlega fjölbreyttum eiginleikum sem finnast að jafnaði einungis í mun stærri og dýrari kerfum.
- Web2benefit er nýtt vefumsjónarkerfi byggt á áratuga þekkingu, með einstaklega notendavænu viðmóti og á verði sem hentar litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
- Backup2benefit kerfi fyrir öryggisafritun. Backup2benefit gerir okkur kleift að bjóða víðtækari og betri þjónustu við notendur okkar kerfa, en einnig þeim sem hafa einungis áhuga á því að auka rekstraröryggi. Eins og með aðrar vörur frá okkur eru þessi kerfi á verði sem kemur skemmtilega á óvart.
Við höfum styrkt samstarfsnet okkar enn frekar frá því sem áður var og getum veitt aðgengi að verðmætri þekkingu sérfræðinga sem eru í fararbroddi á sínu sviði.
Við hvetjum þig endilega til að senda okkur fyrirspurn eða hafa samband í síma 544-5400 varðandi ráðgjöf og nánari upplýsingar.







