Aðgengi að faglegum upplýsingum um rannsóknir og þekkingu á sviði alþjóðavæðingar kemur í veg fyrir mistök og stuðlar að árangri

Nýttu þér þekkingu annarra í þína þágu 

Bókin AÐ FANGA HEIMINN er fyrsta bindi í nýrri ritröð sem hefur að geyma útdrátt úr greinum sem fjalla um fjölbreytt viðfangsefni sem fyrirtæki þurfa að takast á við í alþjóðamarkaðssetningu. Bókin er byggð á safni greina sem birtar hafa verið í viðurkenndum fagtímaritum. Bókin er auðveld í lestri og brúar bilið á milli fræðimanna og stjórnenda. Í bókinni er jafnframt að finna ábendingar um leiðir til að vinna greiningu á erlendum mörkuðum.

Alkemistinn 05MAY10 from Vidar Gardarsson on Vimeo.

 

Bókin er fyrst og fremst hugsuð sem kennslu- og stuðningsefni á háskólastigi, en einnig fyrir aðila sem hafa áhuga á að fylgjast með greinum og rannsóknum á sviði alþjóðamarkaðssetningar. Þrátt fyrir gott aðgengi að gögnum á rafrænu formi, eru stjórnendur tímabundnir og líklegt að þeir kjósi frekar að kynna sér stuttar og hnitmiðaðar upplýsingar á íslensku. Upphaflegu greinarnar eru flestar á ensku og oft á málfari sem gerir kröfur um góða þekkingu á tungumálinu. Markmiðið með ritröðinni er að brúa þetta bil og auka þannig aðgengi að upplýsingum um það sem er að gerast á þessu sviði.

 

 

Helstu viðfangsefni í þessu hefti eru: Smelltu hér til að sækja:
  •  Kenningar í alþjóðavæðingu
  •  Samkeppnisumhverfi og samkeppnishæfni
  •  Menning og umhverfi
  •  Inngönguaðferðir
  •  Nýting fagsýninga
  •  Markaðssetning á internetinu
  •  Verðlagning á erlendum mörkuðum
  • Efnisyfirlit
  • Sýnishorn úr bók
  • Kaupa bók
  • Skoða stuðningsefni

 

Miðvikudaginn 5. maí var tekið viðtal við Gunnar Óskarsson í Alkemistanum á ÍNN sjónvarpsstöðinni um viðfangsefni í alþjóðamarkaðssetningu og alþjóðavæðingu. Í viðtalinu eru tekin raunhæf dæmi um fyrirtæki sem hafa sótt á erlenda markaði og hvernig þau geta náð meiri ávinningi með því að samnýta reynslu, rannsóknir og þekkingu fræðimanna. Í viðtalinu er ennfremur fjallað um stuðning af efni í bókunum Að Fanga Heiminn frá 2009 og Capturing the World frá 2010 við stefnumótun og undirbúning alþjóðamarkaðssetningar. Hér getur þú skoðað viðtal við Gunnar Óskarsson um alþjóðamarkaðssetningu.