Capturing the World er ritröð með hnitmiðaðri samantekt á greinum í alþjóðaviðskiptum. Ákvarðanir byggðar á ýtrustu þekkingu skila góðum árangri
Eykur skilning á alþjóðavæðingu fyrirtækja
Bókin samanstendur af úrvali greina um alþjóðaviðskipti sem birtar hafa verið í ritrýndum tímaritum. Allar greinarnar eru byggðar á rannsóknum með ítarlegum útskýringum á aðferðarfræði, úrtaki og við hvaða aðstæður þær eiga. Í bókinni er hnitmiðuð samantekt á efni greinanna ásamt dæmum um hvernig þær nýtast við stjórnun og stefnumótun fyrirtækja.
Í þessu eintaki er að finna greinar á ensku um:
- Undanfari alþjóðaviðskipta
- Staðsetningu starfsstöðva
- Inngönguaðferðir
- Áhrif menningar á alþjóðaviðskipti
- Tengslanet
- Miðlun þekkingar
- Siðferði
- Mannauðsstjórnun
- Eftirlit með árangri
- Samstarfsaðilar
Allar greinarnar sem fjallað er um í bókinni eru aðgengilegar á rafrænu formi í gegnum gangasöfn á www.hvar.is. Þeir sem áhuga hafa á að kynna sér efni greinanna til hlýtar eiga þannig möguleika að nálgast þær á auðveldan hátt. Og það er jafnvel hægt að ganga enn lengra með því að rekja allar tilvísinar í greinina á Web of Science (eða Google Fræðasetri) og fylgjast þannig með hvernig viðfangsefnið hefur þróast.
Hér getur þú skoðað sýnishorn úr bókinni Capturing the World.







