Þróunin stoppar ekki, heldur eru breytingarnar stöðugt hraðari. Stöðug endurnýjun þekkingar skilar stjórnendum ótrúlega miklum ávinningi
Fræðsla fyrir stjórnendur og ráðgjafa
Til að auðvelda stjórnendum og sérfræðingum aðgengi að nýrri þekkingu höfum við sett fram upplýsingar sem við teljum að komi þeim að gagni. Má þar m.a. nefna upplýsingar um námskeið sem eru í boði og við tökum í sumum tilfellum þátt í að móta, gagnlegar vefsíður, aðgengi að greinum úr tímaritum, bókaútgáfu og ýmsan annan fróðleik. Það er engin leið að vera ávallt með nýjustu upplýsingar, til þess er hraði breytinganna allt of mikill. Við stefnum þó að því að halda okkur sæmilega við, miðla reynslu okkar og þekkingu og gera aðilum þannig auðveldara með að halda sér við. Við leggjum áherslu á upplýsingar sem styðja við nýtingu og ávinning af þeim hugbúnaðarlausnum sem við höfum á boðstólnum:
- Stjórnendur lítilla og meðalstórra fyrirtækja
- Aðilar sem eru í alþjóðaviðskiptum
- Bókara og endurskoðendur
- Ráðgjafa í stjórnun og nýsköpun
Við höfum töluverða reynslu af því að leita að og vinna með nýjustu upplýsingar og aðgengi að upplýsingum í gegnum samstarfsðila okkar, sem flestir eru í fararbroddi á sínu sviði. Mikilvægur þáttur í starfsemi okkar er að brúa bilið milli fræðimanna og sérfræðínga annars vegar og stjórnenda og ráðgjafa hins vegar með því að auka aðgengi að þekkingu sem við teljum að þeir hafi ávinning af.







