Öll fyrirtæki þurfa viðskiptavini. Þú þarft að rækta sambandið og nýta sölutækifærin við núverandi og mögulega viðskiptavini

Markaðs- og samskiptakerfi 

Þó bókhaldskerfi séu nauðsynleg fyrir sérhvern rekstur halda sumir því fram að það sé ekki síður mikilvægt að hafa öflugan hugbúnað sem heldur utan um viðskiptasambönd og sölutækifærin. Slík kerfi voru upphaflega kennd við stjórnun viðskiptasambanda (CRM), en megin tilgangur þeirra er að halda utanum samskipti fyrirtækisins við viðskiptavini, mögulega viðskiptavini, birgja og jafnvel starfsmenn fyrirtækisins.


Sum þessara kerfa halda ennfremur utanum aðgerðir, þjónustu og fleira í miðlægum gagnagrunni og veita viðskiptavinunum jafnvel aðgengi að tilteknum upplýsingum. Allt þetta stuðlar að betri tengslum við viðskiptavinina og bætir þjónustu.


Meðal algengustu CRM kerfa er ACT! sem hefur verið á markaðnum í yfir 20 ár og 2,8 milljónir fyrirtækja víðs vegar um nýta í starfseminni. Ennfremur bjóðum við fjölhæft kerfi frá Sage Pastel sem er samhæft við Evolution. Einn af helstu kostum Resolve er stjórnun atvika eða aðgerða, en kerfið heldur utan um sögu einstaka atvika frá upphafi til enda, hver hafði samband, hvers vegna, hvernig viðfangsefnið var leyst og fleira.


Við skiljum ekki hvers vegna CRM kerfi eru ekki útbreiddari en raun ber vitni. Kerfin okkar eru stöðluð og einstaklega auðvelt að taka þau í notkun. Við bjóðum þó einnig ýmsar sérlausnir sem þróaðar hafa verið fyrir aðila sem eru e.t.v. með svipaða starsemi og þú. Hafðu endilega samband ef þú vilt kynna þér málið nánar.