Það er mikill ávinningur að hafa aðgang að stöðluðum sérkerfum sem henta starfseminni þegar fyrirtækið vex og dafnar
Önnur viðbótarkerfi
Auk þeirra viðbótarkerfa fyrir Sage Pastel Partner sem fjallað er um sérstaklega (gjaldmiðlar, greiningarkjarni, greiðsluseðlakerfi) er möguleiki á fjölda annarra viðbótarkerfa:
Uppskriftakerfi
Partner er með uppskriftakerfi sem heldur utanum alla íhluti í framleiðslu. Þú getur bætt við launakostnaði, stjórnun og öðrum framleiðslukostnaði, sem færist á viðkomandi vöru við framleiðslu. Hægt er að afrita uppskrift frá einni vöru til annarrar og aðlaga eftir þörfum. Þú getur sett saman pakkalausnir og sér kerfið um að tína til allar viðeigandi vörur og reikningsfæra þær á sjálfvirkan hátt.
Uppskriftakerfi er viðbót við birgðakerfi.
Mörg vöruhús
Kerfi sem býður uppá ótal möguleika. Þú getur afritað söluverð frá einu vöruhúsi til annars, ef þú vilt hafa sama verð á öllum sölustöðum. Þú getur skilgreint aðgangstakmarkanir fyrir hvert vöruhús eða takmarkað aðgang einstaka notenda við einungis tiltekið vöruhús.
Uppskriftakerfi er viðbót við birgðakerfi.
Raðnúmerakerfi
Kerfi sem býður uppá möguleika að skrá inn raðnúmer og einstaka vörum allt frá innkaupum til sölu. Þú getur síðan fylgst áfram með raðnúmerinu í tengslum við vöruskil og þjónustu.
Uppskriftakerfi er viðbót við birgðakerfi.
Verkreikningar
Fylgist með tímaskráningu og tímanýtingu. Auðveld leið til að útskulda reikninga og bæta við íhlutum og útlögðum kostnaði.
Eignakerfi
Þú getur stofnað ótakmarkaðan fjölda eigna og skilgreint útreikning afskrifta fyrir sérhverja eign. Eignakerfið opnar möguleika á að fylgjast nákvæmlega með verðmæti eigna á einfaldan og markvissan hátt. Eignakerfið útbýr lotur sem flytur færslur beint í aðalbók og kemur þannig í veg fyrir tvískráningu.
Eignakerfi vinnur með Partner og Xpress.
Kvittanakerfi
Fyrir fyrirtæki sem þurfa að gefa út kvittun til viðskiptavina um leið reikningur er gefinn út.
Afgreiðslukerfi
Handhæg og notendavæn útgáfa af afgreiðslukerfi (POS) fyrir smærri aðila.
Afgreiðslukerfið er einungis fáanlegt með ensku notendaviðmóti. Allar skýrslur og útprentanir geta verið á íslensku.
Sértækar lausnir
Í gegnum samstarfsaðila í um 50 löndum getum við boðið fjölda annarra kerfa sem sniðin eru að fjölbreyttum þörfum aðila í ólíkum atvinnugreinum.
Sértæku lausnirnar vinna einungis með Partner og Xpress (ekki Xpress StartUp)







