Það er mikill ávinningur að hafa aðgang að þeim aðgerðum sem þú þarft á að halda og ekki meira. Þá ertu fljótari að uppfæra síðuna reglulega

Vefumsjón: síður 

Í síðum getur þú á auðveldan hátt stofnað nýjar undirsíður, sett inn texta, myndir, stiklur (í undirsíður eða ytri vefsíður) og annað sem hentar. Þetta er gríðarlega mikilvægur hluti af vefnum sem þú ættir að leggja rækt við.

Þó mikilvægt sé að framsetningin sé vönduð og góð, er innihaldið mikilvægast. Hafðu efnið eins áhugavert og kostur er og fljótlesið. Settu það þannig fram, að það leiði notandann áfram í vefnum og geri honum auðvelt að nálgast það sem hann hefur þörf fyrir eða áhuga á.

Fyrir nokkrum árum gáfu notendur sér góðan tíma í hverri heimsókn á vefsíðu, en sá tími hefur stytst verulega og varir hver heimsókn í dag að jafnaði í um 2 mínútur. Á þeim tíma er hann búinn að vafra um síðuna og skoða það sem honum finnst áhugavert. Notaðu því hnitmiðaðan og áhugaverðan texta og efni. Hér er mikilvægt að vanda sig.

Þú hefur aðgang að textaritil sem auðvelt er að vinna í og býður uppá ýmsa áhugaverða möguleika.

 

Og hér sérð þú dæmi um hvernig síðan birtist í vafra. Í þessu tilfelli er reyndar einnig búið að setja inn myndband sem er gert með því að sækja kóða sem er settur inn með því að velja source í textaritil.

 

Dæmi um aðrar aðgerðir: