Víðtæk þekking og reynsla skilar sér í betri ráðgjöf og þjónustu. Láttu á það reyna hvort við getum orðið að liði
Stjórnandi
Við gerum okkur grein fyrir að í nútíma umhverfi er útilokað að viðhalda þekkingu á öllum sviðum. Við ætlum ekki einu sinni að reyna það. Okkar styrkur liggur í góðri þekkingu og neti af öflugum samstarfsaðilum sem búa yfir þeirri þekkingu sem stuðlar að stöðugri framþróun og tryggir að viðskiptavinir okkar hafi ávallt greiðan aðgang að nýjustu þekkingu.
Framkvæmdastjóri:
Gunnar Óskarsson, er framkvæmdastjóri og stofnandi að Ávinning. Hann er með doktorspróf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Ritgerðin fjallar um áhrif upplýsingatækni á miðlun upplýsinga úr ytra umhverfi fjölþjóðafyrirtækja í nýsköpun, og hvaða þættir hafa helst áhrif á nýtingu upplýsingatækni, miðlun og nýtingu upplýsinga í nýhugsun (innovativeness).
Gunnar er einnig með rekstrarhagfræði (MBA) frá IMD í Sviss og hefur sótt fjölda sérhæfra námskeiða bæði innanlands og erlendis.
Gunnar hefur víðtæka reynslu á sviði upplýsingatækni og störfum í litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
Öflugt net sérhæfðra ráðgjafa:
Samstarfsaðilar sem eru sérhæfðir á sínu sviði og njóta aðgangs að þekkingu í gegnum þúsundir viðskiptavina og sérfræðinga veita okkur þann bakstuðning sem við þurfum á að halda. Þeir koma einnig beint að ráðgjöf og innleiðingu í stærri verkefnum.
Helstu samstarfsaðilar okkar eru:







