Vefsnið eru ódýr og fljótleg leið til að búa til vefsíðu. Stöðluð uppbygging og sveigjanleiki í útfærslu gera öllum kleift að ná ávinningi á vefnum

Vefsnið 

Nú orðið er nánast útilokað að halda úti nokkurri starfsemi nema að vera með vefsíðu. Hún er í rauninni að verða ný tegund af símaskrá. Ef þú finnst ekki á vefnum er allt eins líklegt að viðskiptavinurinn fari eitthvað annað. Þó er mikilvægt að aðilar eigi kost á lausnum sem henta fyrir starfsemina án þess að kostnaðurinn fari úr hófi. Ólíkt símaskránni, hefur viðskiptavinurinn aðgang að fjölbreyttum upplýsingum á vefnum og getur á auðveldan hátt áttað sig á fyrirtækinu, hvað það býður uppá o.fl.

 

Þrátt fyrir að langflestar vefsíður séu sérhannaðar, geta stöðluð vefsnið með vefumsjónarkerfi sem gerir notandum kleift að viðhalda efninu á síðunni hentað í mörgum tilfellum. Við bjóðum upp á nokkur vefsnið sem hægt er að nota beint eða aðlaga að þínum þörfum. Það er t.d. auðvelt að skipta um liti eða setja inn nýja borða með fyrirtækjmerki. Slíkar síður eru fáanlegar á einstaklega lágu verði, eða allt frá kr. 58.000 + VSK.

 

Hér fyrir neðan er að finna nokkur sýnishorn. Ath. Hér er einungis um dæmi um notkun að ræða, en vefsniðin henta fyrir nánast alla starfsemi.

 

Verslun dæmi 1 Verslun dæmi 2

Aðgengilegar upplýsingar, myndræn framsetning og val um liti.

Boðið er uppá vefverslun eða pantanakerfi

Samskonar form og dæmi 1, nema annar litur og myndir
   
Verslun dæmi 3 Verslun dæmi 4
Hentar vel fyrir smásölu með tæki og búnað. Blómaverslanir hafa einnig hag af vefsíðu og góðri ímynd
   
Þjónusta dæmi 1 Verktakar dæmi 1
Hér er dæmi um vefsnið sem hentar ágætlega fyrir þjónustustarfsemi

Eiginleikar sem eru sniðnir að þörfum verktaka svo eitthvað sé nefnt